Drög að nýjum kjarasamningi liggja fyrir

Stjórn Verslunarmannafélags Skagafjarðar fundaði um stöðuna í kjaraviðræðum í kvöld, þriðjudaginn 26. maí. Samkvæmt fréttatilkynningu hefur verið fundað stíft síðustu daga og liggja nú fyrir meginlínur draga að nýjum kjarasamningi sem VR, LÍV, Flóafélögin og StéttVest hafa unnið að með SA síðustu daga.

Í tilkynningunni segir að samningsdrögin geri ráð fyrir að gildistíminn verði til loka árs 2018 og er aðaláhersla á hækkun lægri launa og að verja millitekjur. Lágmarkstekjutrygging hækkar um 86 þúsund krónur á samningstímanum, fer í kr. 245 þúsund krónur á mánuði við gildistöku samningsins og kr. 300 þúsund á mánuði frá og með maí 2018.

Launahækkanir

Hvað varðar launahækkanir er stuðst við taxtahækkanir og launaþróunartryggingu árin 2015 og 2016 en taxta- og prósentuhækkanir árin 2017 og 2018.

  1. maí 2015
  • Launataxtar hækka um kr. 25.000.
  • Byrjunarlaun afgreiðslufólks hækka að auki um kr. 3.400.
  • Launaþróunartrygging annarra en þeirra sem taka laun skv. töxtum er 7,2% fyrir laun að upphæð 300 þúsund krónur eða lægri en fer svo stiglækkandi með hærri tekjum. Launaþróunartryggingin verður aldrei lægri en 3%.
  1. maí 2016
  • Launaþróunartrygging er 5,5%, að lágmarki kr. 15 þúsund. Viðmiðunartímabil er 1. júní 2015 til 30. apríl 2016.
  1. maí 2017
  • Launataxtar hækka um 4,5%.
  • Byrjunarlaun afgreiðslufólks hækka að auki um kr. 1.700.
  • Almenn hækkun er 3%.
  1. maí 2018
  • Launataxtar hækka um 3%.
  • Almenn hækkun er 2%, m.v. átta mánuði.

300 þúsund króna lágmarkstekjutrygging

Í tilkynningunni segir að lægstu taxtar LÍV hækki um 31,1% á samningstímanum. Samið er um árlega hækkun lágmarkstekjutryggingar sem er það lágmark sem greiða verður starfsmönnum. Í dag er lágmarkstekjutrygging 214 þúsund krónur en verður 245 þúsund krónur við undirritun samningsins og endar í kr. 300 þúsund.

Opnunarákvæði ef forsendur kjarasamningsins standast ekki

Samningsaðilar vinna nú að útfærslu ýmissa annarra ákvæða kjarasamningsins en samkvæmt tilkynningunni er mikilvægast af þeim opnunarákvæði ef forsendur kjarasamningsins standast ekki. Auk þess er unnið að sameiginlegum málum með Alþýðusambandi Íslands. Stefnt er að því að ljúka gerð kjarasamninga fyrir vikulok.

„Við viljum minna á aðalfund félagsins sem verður fimmtudaginn 28.maí nk. á Kaffi Krók kl.  20:00. Hvetjum félagsmenn til að fjölmenna á þann fund,“ segir loks í fréttatilkynningu frá Verslunarmannafélaginu.

Fleiri fréttir