Ef heit pera brotnar – yfirgefðu herbergið í 30 mínútur
ESB vinnur að því að koma banni við glóperum og smátt og smátt munu sparperur leysa þær af hólmi. Þetta er gert af umhverfissjónarmiðum þar sem glóperur teljast afar orkufrekar, en eru sparperur umhverfisvænni kostur?
Hér eru upplýsingar um hvernig ber að farga sparperum og hvað skal gera ef pera brotnar:
Með því að tryggja að sparperum sé fargað eða þær endurunnar á réttan hátt, hjálpar þú til við að koma í veg fyrir neikvæð áhrif á umhverfið og heilsu manna. Sparperur innihalda kvikasilfur sem getur haft skaðleg áhrif á fólk og umhverfi ef það er losað út í umhverfið. Förgun verður að vera í samræmi við umhverfisreglugerðir á hverjum stað.
Hvernig á að farga sparperum að líftíma þeirra loknum?
Aðrar reglur gilda um perurnar en venjulegt heimilissorp og því má ekki fara með þær sem slíkt. Þess í stað þarf að fara með þær á endurvinnslustöðvar til förgunar.
Ef peran brotnar
Ef köld pera brotnar lekur dálítið af kvikasilfri út úr henni í dropum sem dreifast um svæðið. Droparnir eru nokkuð fljótir að detta á gólfið með brotum úr perunni, t.d. glerbrotum. Ef heit pera brotnar fer gas- og málmkennt kvikasilfur út í andrúmsloftið.
Hvað á að gera ef köld pera brotnar?
Safnaðu saman brotum úr perunni með stífum pappír eða pappa og settu þau í glerkrukku með loki. Þurrkaðu síðan gólfið með litlum rökum klút. Settu klútinn í glerkrukkuna, lokaðu henni og merktu, t.d. með textanum „gæti innihaldið kvikasilfur úr sparperu“. Farðu með krukkuna á endurvinnslustöð sem tekur á móti úrgangi sem er hættulegur umhverfinu.
Notið ekki ryksugu því hún getur stuðlað að uppgufun kvikasilfursdropanna og dreift þeim um loftið. Það veldur aukinni hættu á innöndun.
Hvað á að gera ef heit pera brotnar?
Lokaðu dyrunum að herberginu þar sem peran brotnaði. Loftræstu herbergið (með því að opna glugga) og yfirgefðu það. ELC (The European Lamp Companies Federation) mælir með því að herbergið sé tómt í 20-30 mínútur.
Safnaðu síðan saman brotum úr perunni, með stífum pappír eða pappa og settu þau í glerkrukku með loki. Þurrkaðu síðan gólfið og fleti nálægt brotnu perunni með litlum rökum klút. Settu klútinn í glerkrukkuna, lokaðu henni og merktu, t.d. með textanum „gæti innihaldið kvikasilfur úr sparperu“. Farðu með krukkuna á endurvinnslustöð sem tekur á móti úrgangi sem er hættulegur umhverfinu.
Notið ekki ryksugu því hún getur stuðlað að uppgufun kvikasilfursdropanna og dreift þeim um loftið. Það veldur aukinni hættu á innöndun.
Heimild: ikea.is / Sænska eiturefnastöðin