Eflum byggð í Húnaþingi vestra
Fræðsluverkefnið Eflum byggð í Húnaþingi vestra hófst þriðjudaginn 1. febrúar en samningur var gerður á milli Farskólans og Virkis Þekkingarseturs um ráðningu verkefnastjóra, Helgu Hinriksdóttur. Samningurinn var undirritaður í Fjarnámsstofunni á Hvammstanga af Bryndísi Þráinsdóttur forstöðumanni Farskólans og Elínu R. Líndal formanni Virkis Þekkingaseturs.
Verkefnið er fjármagnað af Farskólanum. Þá var einnig afhentur öflugur fjarfundarbúnaður til Hvammstanga; myndbúnaður, stór skjár og fjórar fartölvur. Skúli Þórðarson sveitarstjóri Húnaþings vestra tók við búnaðinum og gat þess að fjarnámsstofa hefði verið starfrækt á Hvammstanga frá árinu 2004. Væri þessi endurnýjun búnaðar afar kærkomin.
Fundur í tilefni verkefnisins hafði verið auglýstur og komu rúmlega 50 manns þar saman og var leitað eftir hugmyndum fólks um námskeiðahald.
Mikið hugmyndaflæði kom upp og virtist áhugi á tölvufræðum og tungumálum, einnig bókhaldi, ferðamálafræði, átthagafræði og handverki ýmiskonar. Önnur fög sem talin voru upp voru stærðfræði, eðlis- og efnafræði, ljósmyndun, ættfræði, trjárækt og fleiri.
/Helga Hinriks