Eflum byggð - kynningarfundur í dag

Farskólinn og Virki Þekkingarsetur halda síðar í dag  kynningarfund í fjárnámsstofunnni að Höfðabraut 6 og hefst hann kl. 17:30. Um er að ræða fræðsluverkefnið Eflum byggð í Húnaþingi vestra. Verkefnið er ætlað fulloðrnum íbúum á svæðinu og er það styrkt sérstaklega svo það er þátttakendum að kostnaðarlausu.

Hefur þú áhuga á að efla þig í tölvum, lífsleikni, íslensku, ensku, bókhaldi eða ferðamálafræðum svo dæmi séu nefnd? Eða er eitthvað annað sem þú myndir vilja læra? Kíktu við á fundinn og sjáðu hvað er í boði.

Fleiri fréttir