Einar Andri nýr byggingarfulltrúi

Einar Andri Gíslason hefur verið ráðinn í starf byggingarfulltrúa hjá Sveitarfélaginu Skagafirði til eins árs frá og með 1. desember nk. Tekur hann við af Jóni Erni Berndsen sem gegnt hefur starfi skipulags- og byggingarfulltrúa undanfarin ár. Jón Örn mun frá og með þeim tíma gegna starfi skipulagsfulltrúa þar til ráðið hefur verið í það starf.

Einar Andri er menntaður byggingarfræðingur frá VIA University College í Horsens í Danmörku, ásamt því að vera með sveins- og meistarabréf í húsasmíði. Hann hefur starfað hjá sveitarfélaginu frá árinu 2010 sem starfsmaður skipulags- og byggingafulltrúa og hefur því mikla innsýn og þekkingu á mannvirkjalögum, byggingareglugerð og öðrum þeim reglum sem falla undir starfssvið byggingarfulltrúa, eins og segir á Skagafjörður.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir