Einar K. með fund í kvöld
-Ég nýtti lausan tíma í dag og skellti mér norður, segir Einar Kristinn Guðfinnsson alþingismaður en hann verður gestur á opnum stjórnmálafundi sem haldinn verður í Ljósheimum í Skagafirði kl. 20:00 í kvöld.
-Ég mun væntanega fara yfir stöðu þjóðmála og ekki ólíklegt að Icesave komi þar í umræðuna. Einnig verða atvinnumálin rædd á fundinum, segir Einar. -Ég verð var við það víða að kallað sé eftir breytingum í stjórnsýslunni og skynja mikla vantrú á stjórnarheimilinu og ákall hjá fólki um stefnubreytingu , segir Einar sem kvetur fólk til að koma á fundinn í kvöld og ræða málin.
Daginn hefur Einar notað til að hitta fólk og heimsækja fyrirtæki í Skagafirði og aðspurður segist hann oft koma norður í land enda hans kjördæmi og hér þekki hann marga.