Einar K. og Haraldur funda í Skagafirði í dag

Nú standa yfir kjördæmadagar á Alþingi og því gert hlé á þingfundum svo þingmenn geti sinnt störfum sínum í kjördæmum sínum. Þeir Einar K. Guðfinnsson og Haraldur Benediktsson litu við á skrifstofu Feykis nú í morgun en þeir funda í Skagafirði í gær og dag.

Í gærkvöldi voru þeir félagar með fund í Höfðaborg á Hofsósi og voru þeir ánægðir með þátttöku en að þeirra sögn var vel mætt og skemmtilegar umræður sköpuðust. Var mikið rætt um samdrátt í opinberum störfum í Skagafirði en einnig voru landbúnaðarmál í brennidepli.

Þeir Einar og Haraldur eru sammála um að það stefni í átök í vetur hvað kosningabaráttuna varðar en þeir eru ánægðir með útkomu Sjálfstæðisflokksins í skoðanakönnunum undanfarið. Segja þeir að þær endurspegli viðmót kjósenda og kröfu um stefnubreytingu í stjórnmálum.

Næsti fundur hjá þeim félögum er núna í hádeginu á Hótel Varmahlíð og í kvöld klukkan 20:30 í Ljósheimum.

Á morgun er stefnan tekin í Húnavatnssýslurnar og fundur haldinn í Eyvindarstofu á Blönduósi kl. 12:00 og í Kántrýbæ á Skagaströnd kl. 20:00.

Á fimmtudag verða þeir með fund í Hlöðunni á Hvammstanga kl. 20:30.

Fleiri fréttir