Einar Kárason í Kakalaskála í kvöld

Nú er sumardagskráin á Sturlungaslóð í Skagafirði að rúlla af stað.  Margt er í boði og nú í júní er leikþátturinn Skáld og gönguferð þar sem horft verður yfir ríki Ásbirninga. Sögustundir verða öll miðvikudagskvöld  í júlí,  og hinn árlegi sögudagur í ágúst.

Einar Kárason ríður á vaðið og verður með einþáttunginn Skáld í Kakalaskála laugardagskvöldið 15. júní  kl 20:00. Hann hefur verið að sýna verkið í Landnámssetrinu í vetur og hefur það fengið góða dóma.  Aðgangseyrir er 2.500 kr.

Fleiri fréttir