Einn af hápunktunum ársins í hestageiranum
Það má búast við skemmtilegu Íslandsmóti í hestaíþróttum á Vindheimamelum dagana 18. - 22. júlí. Þarna er von á bestu knöpum landsins etja kappi á frábærum gæðingum í átta hefðbundnum hestaíþróttagreinum.
„Við leggjum uppúr því að hafa stemninguna notalega og bendum ferðafólki á að það sé tilvalið að koma í Skagafjörðinn þessa helgi, kíkja á mótið og gera eitthvað fleira skemmtilegt hér á svæðinu í leiðinni. Það kostar ekkert inn á mótssvæðið, þarna verða leiktæki fyrir börn og hægt að komast á bak hjá Hestasport. Stefnan er að gera veitingaskálann að huggulegum veitingastað. Á laugardagskvöldið verður grill og gaman og síðan verður hestamannaball í Miðgarði með hljómsveitinni Spútnik,“ segir Eyþór Einarsson framkvæmdarstjóri mótsins.
Dagskráin liggur ekki endanlega fyrir, en skráningu líkur í dag fimmtudaginn 12. júlí og eftir þann dag segir Eyþór hægt að negla niður tímasetningar.
„Við búumst við á annað hundrað knapar taki þátt og að mótsgestir gætu orðið um eitt til tvö þúsund yfir helgina. Reiknað er með að mótið fái góða athygli meðal fjölmiðla en t.d. mun Ríkissjónvarpið verða með beina útsendingu frá úrslitunum á sunndeginum,“ segir hann.
Eyþór segir að viðburður sem þessi byggir á því að heimafólk sé tilbúið að taka þátt á öllum sviðum, sem starfsmenn á Melunum, sem gestgjafar, sem gestir mótsins o.s.frv.
„Vonandi skilar þessi fyrirhöfn sér í því að við eflum okkar svæði, styrkjum tengsl við hestafólk í öðrum landshlutum og höfum af þessu eitthvert gaman. Íslandsmót er einn af hápunktunum í hestageiranum ár hvert og stærsti viðburðurinn á norðurlandi þetta árið. Óhætt er að hvetja allt hestaáhugafólk fjær og nær að láta þennan viðburð ekki fram hjá sér fara,“ segir Eyþór í lokin.
Upplýsingar um mótið er hægt að nálgast á heimasíðu á Hrossaræktarsambands Íslands.