Fréttir

Blönduós fagnar 150 ára afmæli

Hátíðahöld í tilefni 150 ára afmælis Blönduóss fara fram laugardaginn 7. nóvember 2026. Forseti Íslands mun heiðra samkomuna með nærveru sinni og afhjúpa minnisvarða um Bríeti Bjarnhéðinsdóttur í lok hátíðardagskrár.
Meira

Guðni prófessor kynnti bók sína um landhelgismálið

„Í Safnahúsinu á Sauðárkróki er mikið um að vera þessa dagana eins og vera ber þegar hið svokallaða jólabókaflóð er hafið. Sagnfræðingurinn Guðni Th. Jóhannesson heimsótti okkur á Héraðsskjalasafn Skagfirðinga 29. október og kynnti bók sína Vald hinna veiku. Saga landhelgismálsins, 1971–1974. Eins og almenningi er kunnugt þá var Guðni forseti Íslands frá 2016 til 2024 en gegnir nú stöðu prófessors í sagnfræði við Háskóla Íslands,“ svaraði Sólborg Una Pálsdóttir forstöðumaður Héraðsskjalasafns Skagfirðinga þegar Feykir spurðist fyrir um heimsókn Guðna
Meira

Bjarni fékk gullmerkið

Á landsþingi LH núna um síðustu helgi voru átta einstaklingar sæmdir gullmerki LH. Í þeim hópi var meðal annars varaformaður Skagfirðings, Bjarni Jónasson sem rekur glæsilega tamninga- og þjálfunaraðstöðu í Borgargerði við Sauðárkrók.
Meira

Yfir 200 krakkar væntanlegir á hrekkjavökuball á Blönduósi

Miðvikudaginn 4. nóvember verður heldur betur líf og fjör í Félagsheimilinu á Blönduósi en þá fer fram hrekkjavökuball fyrir nemendur í 5.–7. bekk af öllu Norðurlandi vestra. „Þetta er í fyrsta sinn sem sameiginlegt ball er haldið fyrir miðstig í landshlutanum og er von á yfir 200 krökkum,“ sagði Kristín Ingibjörg Lárusdóttir þegar Feykir spurðist fyrir um hrekkjavökuball á Blönduósi.
Meira

Grunnskólinn austan Vatna þriðja árið í röð í úrslitum Málæðis

Unglingastig GAV tók þátt í verkefnavinnu á vegum Málæðis nú í haust en lagahöfundurinn og íslenskufræðingurinn magnaði, Bragi Valdimar Skúlason sem oft er kenndur við Baggalút, samdi laglínu. Bauðst nemendum um allt land síðan að semja texta við lagið.
Meira

Þriggja rétta veisla | Matgæðingar Feykis

Matgæðingar vikunnar í tbl. 27 voru Katrín María Andrésdóttir og Baldur Haraldsson á Króknum en á þeirra heimili er hefðbundin verkaskipting í hávegum höfð. Frúin sér yfirleitt um eldamennskuna en bóndinn tekur oftast að sér að grilla, brúna kartöflur, smakka til sósur og fleiri sérhæfðari verkþætti.
Meira

Mæðgin í langferð | Ferð til Kína 11. til 27. september 2026

Blaðamaður Feykis fékk af því veður að Ásdís Sigurjónsdóttir á Syðra-Skörðugili sé nýlega komin úr ævintýraferð til Kína ásamt sérlegum fylgdarmanni. Það er ekki á hverjum degi sem kona á besta aldri fer til Kína og því lá beint við að hafa samband við Ásdísi og forvitnast um ferðalagið.
Meira

Er alltaf með súkkulaði í bílnum

Áfram heldur Feykir að yfirheyra nemendur FNV og nú er það Halldór Stefánsson sem verður fyrir svörum. „Pabbi minn heitir Stefán og er bóndi og smiður og mamma mín heitir Ólöf og er þjálfari hjá Smára og starfsmaður HSN,“ segir Halldór sem hefur alla tíð búið á Þverá í Blönduhlíðinni. „Ég á fjögur systkini, tvær eldri systur sem heita Amalía og Freyja og yngri systur sem heitir Lilja og einn yngri bróðir sem heitir Haraldur.“
Meira

Málþing - Frá þekkingu til verðmæta: Samstarf háskóla og atvinnulífs um öfluga matvælaframleiðslu.

Mánudaginn 19 okt. var haldið málþing í salnum í Kjarnanum á Sauðárkróki í tilefni að stofnun Háskólasamstæðu HÍ og Hóla og þeirra tækifæra sem því fylgja fyrir samfélagið í Skagafirði. Fyrir þinginu stóðu Háskóli Íslands á Hólum og Kaupfélag Skagfirðinga. Fyrr um daginn höfðu gestir frá HÍ heimsótt fyrirtæki og stofnanir í Skagafirði.
Meira

Risarækjutaco og folaldafille | Matgæðingur Feykis

Matgæðingur vikunnar í tbl. 26 var Ólafur Már Sigurbjartsson en það var Patrekur Óli frá Hvammstanga sem skoraði á hann. Ólafur er fæddur og uppalinn á Hvammstanga, fæddur á því herransári 2001 og vinnur í búvöruversluninni hjá Kaupfélagi Vestur Húnvetninga. Hann er einnig sjálfboðaliði fyrir Björgunarsveitina Húnar á svæðinu og er einn af þeim eldhugum sem hefur verið í skipulagsnefnd fyrir bæjarhátíðina Eldur í Húnaþingi sem var haldin 20. – 26. júlí sl. 
Meira