Ekkert annað en árás á landsbyggðina

Stjórn Framsóknarfélags Skagafjarðar mótmælir harðlega framkomnum frumvörpum ríkisstjórnarinnar um breytingar á lögum um stjórnun fiskveiða. Í ályktun frá félaginu segir;  "Þessar breytingar eru ekkert annað en árás á landsbyggðina þar sem sjávarútvegur er meginstoð atvinnu víðast hvar.

 Í Skagafirði er rekinn öflugur sjávarútvegur sem hefur skapað fjölda starfa í samfélaginu um árabil og er ein af meginstoðum verðmætasköpunar í héraðinu . Sá tilflutningur aflaheimilda sem kynntur er í frumvörpunum mun skaða samfélagið varanlega og ekki verður séð með nokkru móti að sá afli sem verði tekinn úr Skagafirði vinnist með hagkvæmari hætti á öðrum stöðum fyrir þjóðarbúið með þeim úthlutunum sem kynntar eru í frumvörpunum . Þá er það stórkostlega óábyrgt að ríkisstjórn skuli leggja til slíkar breytingar á grunnstoðum íslensks samfélags án hagfræðilegrar úttektar á áhrifum breytinganna. Þegar slíkt er gert hlýtur að liggja að baki vilji til einhvers annars en að breyta rétt. Framsóknarfélag Skagafjarðar skorar á sveitarstjórnarmenn í Skagafirði að berjast gegn þessum breytingum af fullri hörku og jafnframt á ríkistjórn að draga frumvörpin til baka, leita sem bestra sátta um framtíð sjávarútvegsins og lágmarka þannig þann skaða sem orðinn er. Sjómenn og fiskverkafólk sem staðið hafa vaktina fram að þessu eiga betra skilið."

Fleiri fréttir