Ekkert ferðaveður!

Um miðjan dag í dag versnaði veðrið til mikilla muna á Norðurlandi vestra og samkvæmt upplýsingum Lögreglunnar á Norðurlandi vestra er nú ófært frá sunnanverðri Holtavörðuheiði að Varmahlíð. Ófært er bæði um Vatnsskarð og Þverárfjall. Þá er ýmist óveður eða stórhríð um allt umdæmið.

Reikna má með því að veðrið gangi niður í nótt og ætti að vera orðið bjart og fallegt í fyrramálið. Þá er spurning hvernig gengur að opna vegina aftur því töluvert snjóar.

Fleiri fréttir