Ekki borgað fyrir lyftu til barnanna

Úrskurðarnefnd almannatrygginga staðfesti nýverið ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um að neita að greiða Magnúsi G. Jóhannessyni kostnað við að útbúa lyftu þannig að hann kæmist í herbergisálmu barna sinna. Kostnaðurinn er óverulegur hluti þess sem hefur kostað að laga húsið að hans þörfum.

„Þetta er í okkar huga ekki spurning um peninga heldur um aðstöðu fatlaðra og rétt þeirra til að öðlast venjulegt og heilbrigt líf eins og annað fólk,“ segir Magnús G. Jóhannesson, bifvélavirki á Sauðárkróki, í viðtali við Morgunblaðið í dag. Magnús slasaðist alvarlega í vinnuslysi fyrir tveimur árum og lamaðist fyrir neðan mitti.

Þegar slysið átti sér stað bjó fjölskyldan í tveggja hæða húsi sem ógerningur var að breyta. Fóru þau að leita að hentugra húsnæði á Sauðárkróki en áttu erfitt með að finna nógu stórt hús á einni hæð sem rúmaði alla fjölskylduna. Þau einskorðuðu leitina einnig við neðri bæinn þar sem auðveldara er að fara um í hjólastól og ekki upp neinar brekkur að fara. Í júlí í fyrra fluttu þau inn í hús sem þau keyptu við Hólmagrund, skammt frá sjónum, sem þau töldu tiltölulega auðvelt að breyta. Það útheimti þó töluverða vinnu og rask fyrir heimilislífið, þar sem þau bjuggu í húsinu á meðan framkvæmdir stóðu yfir við lyftuna og litla viðbyggingu með nýju baðherbergi. Mbl.is segir frá þessu.

Fleiri fréttir