„Ekki er ásættanlegt að ríkið geri sér umbætur sveitarfélaga í umhverfismálum að féþúfu“

Frá Sauðárkróki. Mynd/BÞ
Frá Sauðárkróki. Mynd/BÞ

Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar hefur samþykkt ályktun þar sem skorað er á stjórnvöld að hefja aftur endurgreiðslu virðisaukaskatts á fráveituframkvæmdir sveitarfélaga. „Í ljósi umræðu að undanförnu um fráveitumál sveitarfélaga og nauðsyn þess að vernda lífríki og ráðast í úrbætur þar sem þess er þörf, vill byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar skora á stjórnvöld að hefja aftur endurgreiðslu virðisaukaskatts á fráveituframkvæmdir sveitarfélaga eins og gert var á árunum 1995-2008,“ segir í ályktun byggðarráðs.  

Í ályktuninni, sem lögð var fram af Bjarna Jónssyni áheyrnarfulltrúa VG, segir að slík aðgerð myndi greiða verulega fyrir nauðsynlegum fráveituframkvæmdum sveitarfélaga sem eru verulega kostnaðarsamar. 

„Byggðarráð tekur undir með þeim sveitarfélögum sem bent hafa á að ekki sé eðlilegt að kostnaður við fráveituframkvæmdir skapi tekjustofn fyrir ríkissjóð í formi virðisaukaskatts. Ekki er ásættanlegt að ríkið geri sér umbætur sveitarfélaga í umhverfismálum að féþúfu og komi jafnvel í veg fyrir þær með slíkri gjaldheimtu,“ segir loks í ályktuninni sem samþykkt var á fundi þann 19. maí. 

Fleiri fréttir