Ekki leikið á Sauðárkróksvelli á næstunni

Margir bíða eflaust spenntir eftir fyrsta heimaleik Tindastóls í 1. deildinni í knattspyrnu þetta sumarið. Ef allt væri í heiminum rósótt og snoturt þá væru Stólarnir að fara að taka á móti Húsvíkingum í Völsungi nú á laugardaginn. Feykir hafði samband við Ómar Braga Stefánsson formann knattspyrnudeildar Tindastóls og hann segir klárt að ekki verði leikið á aðalvellinum á næstunni.

-Ástand vallarins er mjög slæmt. Við erum jafnvel hræddir um að það sé ekkert líf í vellinum og staðan skelfileg. Eftir fund í gær var ákveðið að gata völlinn enn meir, bera áburð á hann og halda „rekju“ í honum eins og kostur er. Síðan verður fræ borið á völlinn og beðið til Guðs.

Spurður út í hvort leikurinn gegn Völsungi verði leikinn hér heima sagði Ómar: -Það er klárt að ekki verður leikið á aðalvellinum á næstunni. Unnið er að því að snúa við leiknum við Völsung sem átti að vera hér á vellinum nk. laugardag.

Stuðningsmenn Tindastóls verða því að öllum líkindum að bíða þó nokkurn tíma eftir að berja sína menn augum á heimavelli.

Fleiri fréttir