Ekki með á Ólympíuleikunum að þessu sinni
Helga Margrét Þorsteinsdóttir, frjálsíþróttakona úr Ármanni, tókst ekki að ná Ólympíulágmarki í sjöþraut á móti í Frakklandi um helgina. Þetta var síðasti möguleiki hennar til að komast á Ólympíuleikana og þarf hún því að bíða í fjögur ár eftir því að gera tilraun til þess að vera með á leikunum í Ríó.
Helga Margrét fékk 5.752 stig á mótinu í Frakklandi en Ólympíulágmarkið er 5.950. Íslandmet Helgu Margrétar er 5.878 stig frá árinu 2009. Stefnan var að skora 6.200 stig á árinu 2012 en samkvæmt Mbl.is settu æfingar hennar í Svíþjóð hana út af sporinu.
„Auðvitað er þetta svekkjandi. Alveg hundfúlt bara,“ segir Helga Margrét í viðtali við Morgunblaðið. „Ég er bara að reyna að átta mig á að það verða engir Ólympíuleikar hjá mér. Þetta er alls ekki það sem ég lagði upp með. En þegar ég lít til baka veit ekki hvað ég gat meira gert. Mér finnst ég ekki þurfa að afsaka mig neitt. Ég lagði hjartað í þetta og barðist til síðasta blóðdropa. Þetta er bara svona stundum í íþróttunum. Þetta kemur seinna. Ég trúi því og veit að þetta kemur einn daginn.“