Eldfimur fundur í dag

Skipuleggjendur hátíðarinnar Eldur í Húnaþingi 2010 boða til fundar á Vertanum í dag fimmtudag 3. febrúar, kl. 17:00. Þar verður stutt kynning á umfangi hátíðarinnar og mikilvægi hennar fyrir þjónustufyrirtæki á staðnum, sem og sveitarfélagið í heild.

Á fundinum gefst fundargestum tækifæri á að koma sínum hugmyndum eða ábendingum á framfæri. Áhugasamir einstaklingar um næstu stjórn hátíðarinnar eru sérstaklega hvattir til að mæta.

Hátíðin hefur notið sívaxandi vinsælda undanfarin ár og eru dæmi til staðar að utanbæjarfólk sé nú þegar farið að skipuleggja sumarfrí sín í kringum hátíðina. Svo að vel megi til takast er nauðsynlegt að íbúar og fyrirtæki bæjarins leggist á eitt með skipuleggjendum hátíðarinnar. Öll störf í kringum hátíðina eru unnin í sjálfboðavinnu og því reynir mikið á að fá sem mesta hjálp frá bæjarbúum og völ er á.

Heimild; Norðanátt.

Fleiri fréttir