Eldur á Þúskjáinn
Eldur í Húnaþingi er sumarhátíð Vestur-Húnvetninga sem hefur skapað sér sess í samfélaginu og lífgar upp á mannlífið og brýtur upp hversdagsleikann. Hátíðin hefur verið haldin ár hvert síðan árið 2003 og er öll vinna við undirbúning hátíðarinnar unnin í sjálfboðavinnu af íbúum í héraðinu. Nú samhliða vorkomunni er lítið myndbrot af stemningu síðustu hátíðar komið á YouTube, svona rétt til að fá smá sumar í sinnið.
http://www.youtube.com/watch?v=_26lBZ8gdVU