Eldur í Húnaþingi 20.-24. júlí

Héraðshátíðin Eldur í Húnaþingi verður haldin dagana 20.-24. júlí næstkomandi og verður hverfakeppninni, sem tókst frábærlega í fyrra, haldið áfram með þeirri breytingu að það sem áður var Græna hverfið mun í ár verða Appelsínugula hverfið en aðrir litir eru óbreyttir.

Íbúa Húnaþings vestra í dreifbýli og þéttbýli eru hvattir til að taka þátt í stemningunni og skreyta hátt og lágt. Dagskráin verður nánar auglýst síðar en spurningum varðandi hátíðina er hægt að beina á netfangið eldurihun@gmail.com, eða til Hrafnhildar í síma 661 8741.

Fleiri fréttir