Eldur í Húnaþingi fær styrk
Á fundi byggðarráðs Húnaþings vestra var ákveðið að allt að 150.000 kr. af því fjármagni sem ungmennaráð hefur til ráðstöfunar á árinu 2015 verði notað til að styrkja hátíðina Eldur í Húnaþingi.
Í fundargerð segir að þessi beiðni hafi verið lögð fram frá ungmennaráði, sem að byggðarráð samþykkti.
Eldur í Húnaþingi fer fram í Húnaþingi vestra dagana 22. – 26. júlí. Heimasíðu hátíðarinnar má finna hér.
