Eldur kviknar í dráttarvél
Björn Ólafsson var við í slátt á Krithóli í Skagafirði sl. laugardag þegar kviknaði í dráttarvélinni hans. Hann segir eldinn hafi byrjað með því að smá reyk lagði undan vélarhlífinni. Þegar hann stöðvaði vélina til að kanna málið nánar blossaði upp töluverður eldur. Björn segir vélina hafa orðið alelda á örfáum sekúndum.
„Mágur minn fór og sótti slökkvitæki. Við kláruðum úr þremur tækjum á meðan við biðum eftir lögreglu,“ sagði Björn í samtali við Feyki.
Hann segir dráttarvélina gjörónýta en hún er að gerðinni Ferguson 350 frá því um miðjan níunda áratuginn. Þegar hann er spurður hvort hann hafi orðið hræddur neitar hann því, fremur pirraður en svona lagað tefur fyrir slætti.