„Elsku vinir reynum að hjálpa“ - söfnun fyrir Kollu og börn

Vinir Kolbrúnar Evu Pálsdóttur hafa hrint af stað söfnun fyrir hana og börn þeirra Villa Sigga.
Vinir Kolbrúnar Evu Pálsdóttur hafa hrint af stað söfnun fyrir hana og börn þeirra Villa Sigga.

Vinir Kolbrúnar Evu Pálsdóttur hafa hrint af stað söfnun fyrir vinkonu sína og þremur börnum hennar en þann 12. júní 2016 lést Vilhjálmur Sigurður Viðarsson (Villi Siggi) unnusti hennar. Í tilkynningu frá vinum hennar segir að Villi Siggi hafi verið lengi frá vinnu, sem hafði áhrif á heimilisbókhaldið. 

„Villi starfaði lengst af sem bílstjóri hjá Vörumiðlun á Sauðárkróki, pizzabakari á Ólafshúsi, olíubílstjóri hjá Skeljungi Akureyri og síðast í bílabúð KS í Kjarnanum Sauðárkróki, fyrir þremur árum síðan varð hann fyrir slysi sem varð til þess að hann varð óvinnufær í langan tíma og hafði í kjölfarið mjög litlar tekjur.

Við biðjum ykkur af öllu hjarta að styðja þessa ungu fjölskyldu og hjálpa í þeim erfiðleikum sem þau eru að ganga í gegnum. Margt smátt gerir eitt stórt því leitum við til ykkar kæru einstaklingar, fyrirtæki, stofnanir, félagasamtök, klúbbar ofl. til að gefa eins og fólk treystir sér til þá tekst okkur örugglega að safna góðum sjóði,“ segir í tilkynningunni. 

Reikningsnr og kt: Kolbrúnar
0310-26-001410 kt: 141076-3969

Fleiri fréttir