Endurbætur á Sundlaug Sauðárkróks að hefjast
Framkvæmdir eru að hefjast við endurbætur á Sundlaug Sauðárkróks en í verkinu felast endurgerð á núverandi laugarhúsi, jafnt að utan sem innan, og breytingar á skipulagi innanhúss. Aðalverktaki verksins er K-Tak ehf. og hljóðar verksamningur upp á 332 milljónir króna. Verklok á endurbótum innanhúss eru 15. maí 2019 og skal verkinu að fullu lokið 15. ágúst 2019.
Á heimasíðu Svf. Skagafjarðar segir að á 1. hæð verði anddyri, snyrting fyrir hreyfihamlaða, gangrými, lyfta og aðstaða starfsmanna. Vesturhluti núverandi kvennaklefa á jarðhæð verður óráðstafaður, og gufubað í suðurenda jarðhæðar verður óbreytt að mestu. Á 2. hæð verður útbúinn kvennaklefi og blautgufa í austurhluta hússins þar sem nú eru geymslur, vaktrými og þrekaðstaða, en karlaklefi í vesturhlutanum. Fyrir miðju verður afgreiðsla og vaktrými, ásamt sérstökum klefa fyrir hreyfihamlaða.
Framkvæmdunum verður í grófum dráttum skipt í tvo verkáfanga
Í fyrri áfanga verður tekinn fyrir austurhluti sundlaugarhúss, 1. og 2. hæð. Í upphafi verkáfangans verður útbúinn nýr bráðabirgðainngangur á norðurhlið og afgreiðsla verður færð til. Einnig verður vaktrými á 2. hæð flutt út á sundlaugarsvæðið. Á meðan unnið er að þessum áfanga verða innstu hlutar núverandi kvenna- og karlaklefar notaðir. Gufubað verður lokað á meðan unnið er að þessum verkáfanga.
Í öðrum verkáfanga verður tekinn fyrir vesturhluti hússins, þ.e. núverandi kvenna- og karlaklefar. Nýr kvennaklefi verður þá tilbúinn til notkunar á efri hæð og karlaklefi verður staðsettur við núverandi gufubað á 1. hæð.
Við framkvæmd sem þessa er óhjákvæmilegt að starfsemi sundlaugarinnar raskist verulega og mun þurfa að loka sundlauginni á hluta verktímans en reynt verður að halda lokunum í lágmarki. Í dag er fyrirséð að fyrsta lokun mun verða mánudaginn 8. janúar. nk. og mun standa yfir í 2 vikur.
Reynt verður að tilkynna um frekari lokanir með góðum fyrirvara svo gestir laugarinnar geti gert ráðstafanir með breytta tilhögun. Minnt er á aðrar sundlaugar sveitarfélagsins í Varmahlíð og Hofsósi í því sambandi.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.