Endurgreiðsla Landsbankans komið til góðra nota
Sveitarstjórn Húnaþings vestra hefur ákveðið að ráðstafa 15 millj. kr. endurgreiðslu frá Landsbankanum, í tengslum við niðurfellingu láns sem tekið var vegna kaupa á stofnfé í Sparisjóði Vestfjarða og til stofnfjáraukningar Sparisjóðs Húnaþings og Stranda árið 2007, til fjölbreyttra samfélagsverkefna í þágu íbúa Húnaþings vestra.
Sveitastjórn Húnaþings vestra var tilkynnt um þá ákvörðun Landsbankans, að eftirstöðvar lánsins yrðu felldar niður að fullu og jafnframt að þær innborganir sem greiddar voru til Landsbankans eða SpKef Sparisjóðs yrðu endurgreiddar alls 15.204.295-, í bréf frá Landsbankanum dagsett 26. janúar 2012 og var það tekið fyrir á fundi sveitarstjórnarinnar sl. fimmtudag, þann 9. febrúar.
Nauðsynlegt að koma á framfæri, skv. Sveitarstjórn Húnaþings vestra
Umrætt lán var tekið til að kaupa stofnfé í Sparisjóði Vestfjarða og stofnfjáraukningar í Sparisjóði Húnaþings og Stranda í aðdraganda samruna þessara sparisjóða við Sparisjóðinn í Keflavík. Þann 1. janúar 2012 voru eftirstöðvar lánsins kr. 17.333.463- og verða þær felldar niður að fullu. Afborganir af láni þessu á árunum 2012-2015 hefðu orðið alls kr. 23.293.921- að teknu tilliti til vaxta. Á árinu 2007 keypti sveitarstjórn Húnaþings vestra stofnbréf að fjárhæð kr. 166.028.781- Í lok árs 2007 er bókfærð stofnfjáreign sveitarfélagsins kr. 179.754.309-.
Ef ofangreind ákvörðun Landsbankans hefði ekki komið til hefðu heildargreiðslur sem Húnaþing vestra hefði greitt vegna stofnfjárkaupanna, að teknu tilliti til arðgreiðslna, endurmats og upphaflegs stofnfjár og vaxta vegna afborgana láns orðið alls kr. 156.131.918-
Með áðurnefndri ákvörðun Landsbankans um endurgreiðslu og niðurfellingu eftirstöðva láns er heildarkostnaður Húnaþings vestra vegna stofnbréfakaupa á árinu 2007 alls kr. 117.633.702- Þannig hefur tjón sveitarfélagsins verið takmarkað um alls kr. 38.498.216-.
Lex-lögmannsstofa gætti hagsmuna Húnaþings vestra
Sveitarstjórn Húnaþings vestra fól Lex-lögmannsstofu að annast málefni Húnaþings vestra í kjölfar niðurstöðu héraðsdóms í málum stofnfjáraðila í Byr til að takmarka tjón sveitarfélagsins. Upphaflega var lögmannsstofan var fengin til að taka saman minnisblað um áhrif þeirrar dómsniðurstöðu á kröfu Húnaþings vestra í þrotabú Sparisjóðsins í Keflavík og að veita ráðgjöf til sveitarstjórnar um rökrétt framhald málsins.
Í framhaldi leitaði Lex-lögmannsstofa samkomulags við Landsbankann um meðferð eftirstöðva lánsins og hefur niðurstaða þess samkomulags nú verið gerð kunn.
Féð komið til góðra nota
Á fundinum lagði Leó Örn Þorleifsson, oddviti Húnaþings vestra, fram þá tillögu að 15 millj. kr. endurgreiðslan yrði ráðstöfuð til fjölbreyttra samfélagsverkefna, eins og kom fram hér að ofan, og var tillagan samþykkt með sjö atkvæðum. Þau verkefni eru eftirfarandi:
Grunnskóli Húnaþings vestra:
Kr. 2.000.000- til kaupa á húsgögnum í kennslustofur.
Leikskólinn Ásgarður:
Kr. 2.000.000- v/ aðgengis- og öryggismála með breytingu á aðkomu skólabarna.
Brunavarnir Húnaþings vestra:
Kr. 1.000.000- til búnaðarkaupa.
Vinnuskóli:
Kr. 750.000- til endurbóta á húsnæði Vinnuskóla.
Íþróttamiðstöð Húnaþings vestra:
Kr. 1.500.000- v/ kaupa á læstum skápum í búningsklefa.
Kr. 1.250.000- v/ kaupa á hlaupabretti í þrektækjasal.
Tónlistarskóli Vestur-Húnavatnssýslu:
Kr. 500.000- v/ hljóðfærakaupa.
Bóka- og skjalasafn Húnaþings vestra:
Kr. 1.000.000- v/ kaupa á skáp í héraðsskjalasafn.
Íbúðir aldraðra í Nestúni:
Kr. 500.000- v/ endurbóta / búnaðarkaupa.
Félagsheimili í Húnaþingi vestra:
Félagsheimilið Ásbyrgi kr. 500.000- v/ endurbóta / búnaðarkaupa.
Félagsheimilið Víðihlíð kr. 500.000- v/ endurbóta / búnaðarkaupa.
Félagsheimilið Hvammstanga kr. 500.000- v/ endurbóta / búnaðarkaupa.
Ungmennaráð Húnaþings vestra:
Kr. 500.000- verði ráðstafað að fengnum tillögum ungmennaráðs.
Landbúnaðarráð Húnaþings vestra:
Kr. 1.000.000- v/ viðhalds og endurnýjunar heiðagirðinga.
Upplýsingaskilti í dreifbýli:
Kr. 1.500.000- v/ merkinga á héraðs- og tengivegum.