Endurheimt Brimnesskóga í Skagafirði
Nýlega gróðursetti Sumarvinnuhópur Landsvirkjunar Blöndustöð 2000 kynbættar birkiplöntur í gróðurreit til endurheimtunar Brimnesskóga í grennd við ána Kolku í Skagafirði. Landsvirkjun hefur um árabil lagt verkefninu lið undir heitinu „Margar hendur vinna létt verk“. Alls unnu fimmtán manns að gróðursetningu og áburðargjöf í þessum áfanga.
Birkiplönturnar eru ættaðar úr Geirmundarhólaskógi í Skagafirði. Þær hafa verið kynbættar í Gróðrarstöðinni Mörk í Reyjavík en eru ræktaðar hjá Barra ehf. Sveitarfélagið Skagafjörður á landið sem er um 23 ha en áhugahópur um endurheimt Brimnesskóga annast framkvæmdir.
Vilji fólk fræðast um verkefnið eða leggja því lið á einhvern hátt má hafa samband við Stefán S. Guðjónsson stjórnarformann Brimnesskóga, félags í síma 896 1890 eða Stein Kárason í síma 896 6824. Aðrir stjórnarmenn í félagi um endurheimt Brimnesskóga eru Vilhjálmur Egilsson, Sölvi Sveinsson og Jón Ásbergsson. Fyrir hönd sveitarfélagsins hefur Helga Gunnlaugsdóttir garðyrkjustjóri Skagafjarðar lagt verkefninu lið.
/Fréttatilk.