Endurvinnsla og flokkun á Hvammstanga
Margir hafa velt því fyrir sér á undanförnum vikum, eða frá því Húnaþing vestra og HH gámaþjónusta á Hvammstanga fóru að taka við flokkuðu plasti, hvað verði um plastið sem fólk er hvatt til að flokka og skila. Það er eðlilegt að fólk spyrji sig og aðra að þessu, segir á Húnaþingsblogginu.
Margar ranghugmyndir eru þó í gangi með flokkun og skilun á plastinu og hefur því jafnvel verið haldið fram að plastið fari "í sömu holu" og heimilissorpið, en svo alls er ekki.
Margir kannast við þau stóru plastílát sem plastumbúðir frá neytendum fara í en þar hefur hörðu plasti verið troðið í seinustu vikur og því safnað saman og er kominn tími til að fara með plastið á Sauðárkrók þar sem tekið er við því, plastið pressað í stóra bagga og flutt erlendis eða jafnvel sett í endurvinnslu hér á Íslandi.
/hunathing.123.is