Engin hitaveita á Ströndina
Ekki þykir hagkvæmur kostur fyrir Skagafjarðarveitur að leggja hitaveitu í Skörð og á Reykjaströnd samkvæmt hagkvæmniútreikningum sem verkfræðistofan Stoð gerði fyrir fyrirtækið.
Íbúar Reykjastrandar höfðu óskað eftir því við Skagafjarðarveitur að þær létu kanna hagkvæmni þess að leggja hitaveitu frá Veðramóti og út að Fagranesi.
Brátt verður ráðist í framkvæmdir vegna lagningu hitaveitu í Sæmundarhlíð.