Enginn með Steindóri á Hofsósi
Leikfélag Hofsóss hefur staðið í ströngu undanfarnar vikur við að setja upp leikritið Enginn með Steindóri, eftir Nínu Björk Jónsdóttur og brátt rennur frumsýningardagur upp. Eftirfarandi bréf barst úr herbúðum Leikfélags Hofsóss.
Fyrir tveimur árum gerðust félagar í leikfélagi Hofsós sekir um stórglæp. Þeir framleiddu hið stórhættulega efni Pókók sem olli miklum veikindum hjá landanum. Leikfélagar hafa í kjölfarið legið í dvala og haft hægt um sig en nú er nóg komið af því.
Nú þegar blessað gula skrímslið lætur sjá meira af sér, fer sá tími í hönd er leikþyrstir félagar hinna ýmsu leikfélaga skríða úr fleti sínum og setja stefnuna leynt og ljóst upp á svið í þörf sinni fyrir útrás og athygli.
Félagar í leikfélagi Hofsós hafa þar ekki látið sitt eftir kyrrt liggja. Staðið hefur verið í ströngu við æfingar undanfarnar vikur og mun nú styttast í að herlegheitin verði mönnum og konum bjóðandi.
Enginn með Steindóri, nefnist verkið sem sýna skal, höfundur er Nína Björk Jónsdóttir og leikstjóri er sú mæta kona Ingrid Jónsdóttir. Alls koma níu leikarar við sögu hver öðrum glæsilegri, svo vart má halda vatni.
Bréfritari hefur lofað að ljóstra ekki of miklu upp um söguþráðinn en heyrst hefur að hér sé um að ræða hressilegt boð sem fer örlítið úr böndunum þegar óvæntan gest ber að garði. Segi ekki meir, segi ekki meir.
En spurningin er: Er örugglega enginn með Steindóri?
Til að fá svar við því er um að gera að drífa sig á sýninguna.
Frumsýnt verður föstudaginn 16. mars í Félagsheimilinu Höfðaborg á Hofsósi, þar verður gleðin við völd.
Sjáumst í leikhúsi.