Enginn sviðsskrekkur í Hamarsbúð
Húsfyllir var á Sviðamessu Húsfreyjanna sl. helgi. Frábærir veislustjórar fóru með gamanmál og gestir nutu matarins og fjöldasöngurinn hljómaði um nesið við gítar- og harmonikkuleik.
Þriðja og síðasta kvöldið verður nk. laugardag 15.okt. og eru nokkrir miðar enn lausir. Miðapantanir eru sem fyrr hjá Heiðu í síma 451 2696.
Borðhald hefst kl. 20:00. Allur ágóði rennur til góðgerðarmála í héraði.