Húsnæðismál og fleira til umræðu á aðalfundi FEB
Aðalfundur Félags eldri borgara í Skagafirði var haldinn í Húsi frítímans 14.apríl s.l. Fundinn sóttu 60-70 manns. „Starf eldri borgara í Skagafirði er nokkuð fjölbreytt, en húsnæðisskortur stendur félaginu nokkuð fyrir þrifum, en F.E.B. fær aðeins tíu klukkustundir á viku til tómstundastarfa í Húsi frítímans. Þar er spilað bridge, félagsvist og bingó. Einnig er þar leikfimi og handavinna,“ sagði Birgitta Pálsdóttir, formaður félagsins, í samtali við Feyki.
Í stjórn F.E.B. í Skagafirði eru. Birgitta Pálsdóttir formaður, Helga Sigurbjörnsdóttir varaformaur, Árni Bjarnason ritari, Engilráð Sigurðardóttir gjaldkeri. Meðstjórnendur eru Sigfús Helgason, Bjarni Jónsson, Sigrún Angantýsdóttir og Ríkarður Másson.
F.E.B. er opið 6o ára og eldri og er árgjaldið tvö þúsund krónur. Starfandi er ferðanefnd og eru farnar tvær til þrjár stuttar ferðir á ári hverju. Félagið er hagsmunafélag eldri borgara og er aðili að Landssambandi eldri borgara. Helstu baráttumál L.E.B. í dag eru leiðrétting á almannatrygginga- og lífeyrissjóðakerfinu og að tryggja eldri borgurum 300 þúsund króna lágmarkstekjur á mánuði. Þá er vasapeningakerfi vistmanna á Dvalarheimilum til endurskoðunar.
„Fráfarandi gjaldkeri er Sigurður Björnsson og eru honum sendar þakkir fyrir einstaklega vel unnin störf. Félagið sendir íbúum Skagafjarðar góðar óskir um gleðilegt og gott sumar og þakkar um leið veittan velvilja og stuðning,“ sagði Birgitta að lokum.