Fréttir

Skot í gær og annað væntanlegt í kvöld

Stinningskaldi er nú sitt hvoru megin við Skaga en hiti er um og yfir frostmarki. Allir vegir sem vanalega eru opnir yfir veturinn eru færir en víðast hvar er hálka, hálkublettir eða snjóþekja. Það hægir á vindi um hádegi en í kvöld og næstu nótt ganga skil yfir landið og þá bæði hvessir og snjóar á Norðurlandi vestra.
Meira

Skagstrendingar gera klárt fyrir framkvæmdir sumarsins

Á Skagaströnd hefur verið unnið markvisst að umbótum á innviðum og þjónustu undanfarin misseri, samhliða því að undirbúningur fyrir sumarið er kominn vel á veg. Fjölbreyttar framkvæmdir eru í gangi á sviði mannvirkja, skólamála, gatnakerfis og hafnaraðstöðu.
Meira

Glaumbær hlýtur sérstaka viðurkenningu

Hvatningarverðlaun CIE Tours til framúrskarandi fyrirtækja í ferðaþjónustu voru veitt við hátíðlega athöfn á veitingastaðnum MAR Seafood í Reykjavík í gær, 24. febrúar. Þetta er í annað sinn sem verðlaunin eru veitt hér á landi en þau eru einnig veitt árlega í Bretlandi og á Írlandi.  Meðal þeirra sem hlutu sérstaka viðurkenningu var Glaumbær Museum.
Meira

Framúrskarandi verkefni 2025

Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra kallar eftir tilnefningum til framúrskarandi verkefna á Norðurlandi vestra á árinu 2025. Þetta er í sjöunda sinn sem viðurkenningin verður veitt og gert er ráð fyrir að hún verði afhent í lok mars 2026. Viðurkenningarnar eru veittar í tveimur flokkum: Annars vegar verkefni á sviði atvinnuþróunar og nýsköpunar og hins vegar verkefni á sviði menningar.
Meira

Keppni í Meistaradeild KS frestað til föstudags

Í kvöld átti að keppa í slaktaumatölti T2 í Meistaradeild KS í hestaíþróttum í Reiðhöllinni Svaðastöðum. Vegna slæmrar veðurspár fyrir kvöldið, en spáð er snarpri sunnanátt og snjókomu í Skagafirði, hefur verið tekin ákvörðun um að fresta keppni og verður mótið þess í stað haldið föstudaginn 27. febrúar klukkan 19:00.
Meira

Veður fer versnandi þegar líður á daginn

Vegir á Norðurlandi vestra er færir en á flestum þeirra er þó hálka eða hálkublettir. Á vegum á Skaga og Tröllaskaga er ýmis skafrenningur eða éljagangur og því vissara að kanna aðstæður áður en lagst er í ferðalög því gert er ráð fyrir snjókomu þegar líður á daginn og auknum vindi þegar kvöldið nálgast.
Meira

Flösku- og dósasöfnun frestað til fimmtudagsins 26. feb.

Flösku- og dósasöfnun sem átti að fara fram á morgun, miðvikudaginn 25. febrúar, hefur verið frestað til fimmtudagsins 26. febrúar og munu iðkendur Körfuknattleiksdeildar Tindastóls ganga í hús á Króknum milli kl. 17-19. Ef þið eruð vant við látin, en viljið gefa nokkrar dósir og/eða flöskur, þá er ykkur velkomið að setja poka fyrir utan hurðina hjá ykkur merkta Tindastól og við kippum þeim með okkur.
Meira

Á sama tíma að ári á svið í Bifröst

Það er löngu orðin hefð fyrir því að Leikfélagið á Sauðárkróki frumsýni leikrit í Sæluviku. Venjulega er eitt verk sýnt að vori, ætlað fullorðnum áhorfendum og haustverk félagsins yfirleitt fyrir yngri kynslóðina. Leikfélag Sauðárkróks er eitt elsta áhugamannaleikfélag á landinu en það var stofnað 13. apríl 1888.
Meira

Sundlaugin í Varmahlíð lokuð

Sundlaugin í Varmahlíð er lokuð vegna kaldavatnsleysis.
Meira

Það kólnar og spáð er éljagangi í dag og á morgun

Það skall á með nettri sunnanátt í gær og hitnaði duglega. Það varð að sjálfsögðu til þess að snjórinn sem hafði lagst svo bjartur og fallegur á jörðina bráðnaði. Þegar Króksarar héldu út í myrkrið í morgun var snjórinn að mestu horfinn og stöku svellbunkar það sem minnti á veturinn. Það eru þó allar líkur á að snjórinn komi fljótt aftur því í dag og fram á föstudag má reikna með éljagangi og snjókomu af og til og frostið fer að bíta á ný.
Meira