Mottudagurinn 10. mars

Á morgun, föstudaginn 10. mars, hvetur Krabbameinsfélagið alla landsmenn, konur og karla, til að halda upp á Mottudaginn með því að leyfa karlmennskunni að skína sem aldrei fyrr. „Á Mottudeginum látum við ímyndunaraflið ráða för og skörtum öllu mögulegu tengdu karlmanninum, fatnaði, höfuðfötum, gerviskeggi o.s.f. og hvetjum alla landsmen til að gera slíkt hið sama. Leyfum karlmennskunni að njóta sín þennan dag,“ segir á heimasíðu Mottumars.

Á Mottumars.is eru allir hvattir, vinir, vandamenn og samstarfsfélagar, að taka þátt í átakinu og ekki væri verra ef starfsmenn vinnustaða tækju sig saman og efndu til skemmtilegra leikja í tengslum við daginn. Þá  hvetur Krabbameinsfélagið hópa til að gera eitthvað skemmtilegt saman og láta mynda sig á ýmsan hátt og senda á mottumars@krabb.is eða setja á Facebooksíðu átaksins.

Feykir tekur undir hvatningu Krabbameinsfélagsins og birtir myndir sem kunna að koma í pósthólfið. Áfram karlar Íslands!

Fleiri fréttir