Héraðsþing USVH 2017

Frá héraðsþingi USVH. Mynd: usvh.is
Frá héraðsþingi USVH. Mynd: usvh.is

Héraðsþing USVH var haldið í Félagsheimilinu Víðihlíð miðvikudaginn 15. mars og sá ungmennafélagið Víðir um utanumhald þingsins að þessu sinni.

Þingið var vel sótt.  Góðir gestir frá UMFÍ komu í heimsókn, þau Sabína Steinunn Halldórsdóttir landsfulltrúi og Auður Inga Þorsteinsdóttir framkvæmdastjóri, og frá ÍSÍ þau Þórey Edda Elísdóttir, fyrsti varamaður í stjórn ÍSÍ og Viðar Sigurjónsson, skrifstofustjóri ÍSÍ á Akureyri. Tilkynntar voru breytingar á framkvæmdastjóra USVH en Sveinbjörg Pétursdóttir hefur óskað eftir ársleyfi frá störfum og mun Eygló Hrund Guðmundsdóttir leysa hana af  í millitíðinni.
Kosið var um varaformann, gjaldkera, ritara, og 3 varamenn. Varaformaður var kjörinn Halldór Sigfússon, Ómar Eyjólfsson sem gjaldkeri og  Sara Ólafsdóttir ritari. Sveinbjörg Pétursdóttir var kosin fyrsti varamaður, Ingveldur Linda Gestsdóttir annar og þriðji varamaður var kosinn Ragnar Bragi Ægisson. 

Sigurbjörg Jóhannesdóttir, Vigdís Gunnarsdóttir og Elín Jóna Rósinberg hættu störfum fyrir stjórn USVH og voru þeim færðar þakkir fyrir vel unnin störf ásamt blómvendi. Elínu Jónu var jafnframt veitt gjafabréf að skilnaði fyrir 16 ára störf sem gjaldkeri félagsins.

Fleiri fréttir