Erla Björt hlýtur styrk

Skagfirðingurinn Erla Björt Björnsdóttir var fimmtudaginn 16. júní sl. í hópi 14 nemenda sem hefja nám við Háskóla Íslands í haust sem hlaut styrk úr Afreks- og hvatningarsjóði skólans.

Nemendurnir eiga það sameiginlegt að hafa náð framúrskarandi árangri á stúdentsprófi. Styrkurinn nemur 300 þúsund krónum á hvern styrkhafa auk þess sem skráningargjald skólans, 45 þúsund krónur, er fellt niður. Erla Björt brautskráðist frá Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki í vor og var dúx. Erla Björt, sem leikur knattspyrnu með Tindastóli, hyggur á nám í lyfjafræði í Háskóla Íslands í haust.

Fleiri fréttir