Ertu öruggur um borð? Átaksverkefni Vinnslustöðvarinnar, FISK Seafood og VÍS í öryggismálum á skipum

Vitinn á Hrólfsskeri á Eyjafirði og gamli vegurinn fyrir Ólafsfjarðarmúla hangir í hlíðinni vinstra megin. Mynd: Atli Rúnar Halldórsson.
Vitinn á Hrólfsskeri á Eyjafirði og gamli vegurinn fyrir Ólafsfjarðarmúla hangir í hlíðinni vinstra megin. Mynd: Atli Rúnar Halldórsson.

Vinnslustöðin, FISK Seafood og VÍS hafa hrundið af stokkum átaksverkefni sem ætlað er að beina kastljósum að öryggismálum á skipum fyrirtækjanna og skerpa á vitund og árvekni skipverja í þeim efnum. Verkefnið hófst mánudaginn 10. maí og stendur yfir í fimm vikur.

Í frétt á  heimasíðu Vinnslustöðvarinnar segir að kallað verði eftir því að hver og einn skipverji skrái í sérstakt atvikaskráningakerfi ábendingar um hættur á vinnusvæðum, hvað betur megi fara og hvernig. Þar kemur fram að athygli beinist að tilteknu svæði í skipunum í hverri viku átaksins. Í fyrstu vikunni er það þilfarið, í þeirri næstu vinnsludekk og síðan koma lestir og vélarrúm, vistarverur sjómanna og koma/brottför.

Skipverjarnir skrá athugasemdir og ábendingar í snjalltækin sín og þær berast skipstjórnendum og öryggismálafulltrúum fyrirtækjanna og gert er ráð fyrir að brugðist sé við sumum athugasemdum strax ef svo ber undir en að aðrar hugmyndir um úrbætur kalli á meiri undirbúning.

Í stýrihópi verkefnisins eru Gísli Níls Einarsson, sérfræðingur í forvörnum hjá VÍS, Lilja Björg Arngrímsdóttir, lögfræðingur og yfirmaður starfsmannamála Vinnslustöðvarinnar, og Stefanía Inga Sigurðardóttir, gæða- og öryggisstjóri hjá FISK. Ávarpi í dreifiriti hópsins til skipverja um málið lýkur eftir eftirfarandi orðum:
Vinnslustöðinni og FISK er umhugað um heilsu og öryggi starfsmanna sinna. Gerum skipið að slysalausum vinnustað þannig að allir komi heilir heim að veiðiferð lokinni. Til að ná þeim markmiðum að gera skipið að slysalausum vinnustað þurfa stjórnendur og skipverjar að sýna forystu og setja öryggis- og vinnuverndarmál í forgang. Taktu virkan þátt í forvarnarstarfi og mundu að glöggt er gests augað.

Sjá nánar HÉR

 

 

Fleiri fréttir