Eyðibýli og afdalir í Skagafirði

Síðustu vikur hafa Guðný Zoëga og Guðmundur Sigurðarson hjá fornleifadeild Byggðasafnsins ásamt Hjalta Pálssyni og Kára Gunnarssyni hjá Byggðasögu Skagafjarðar verið við rannsóknir á fornum byggðaleifum í Fljótum og Sléttuhlíð.

Rannsóknirnar eru hluti af samstarfsverkefni Byggðasafnsins og Byggðasögunnar sem kallast Eyðibýli og afdalir í Skagafirði. Farið er á valda staði og leitast við að aldursgreina búsetuminjar og meta eðli þeirra með því að taka borkjarna og grafa könnunarskurði.

Við rannsóknirnar í sumar er í fyrsta sinn notast við svokallaðan dróna eða flygildi til að taka myndir úr lofti og hefur það gefið góða raun, líkt og sjá má á meðfylgjandi mynd.
Niðurstöður þessara rannsókna munu birtast á síðum Byggðasögunnar og í rannsóknarskýrslu verkefnisins, en skýrslum fyrri ára er hægt að hlaða niður af heimasíðu safnsins.

Heimild: Byggðasafn Skagfirðinga

Fleiri fréttir