EYFI 50 TÓNLEIKAFERÐ 2011
Þann 17. apríl s.l. varð Eyjólfur „Eyfi“ Kristjánsson fimmtugur. Af því tilefni er hann nú á mikilli tónleikaferð um Ísland og mun hann heimsækja 50 staði víðs vegar um landið. Eyfi fer yfir 30 ára feril sinn sem tónlistarmaður, spjallar á léttum nótum við tónleikagesti og flytur öll sín þekktustu lög ( Nína—Álfheiður Björk—Dagar—Kannski er ástin—Ég lifi í draumi—Danska lagið—Góða ferð o.m.fl. )
Eyfi verður með tónleika í Sauðárkrókskirkju miðvikudagskvöldið 18. maí og í Hofsósskirkju fimmtudagskvöldið 19. maí og er það í fyrsta sinn, sem Eyfi heldur tónleika á Hofsósi. Báðir tónleikarnir hefjast kl. 20.30 og er aðgangseyrir kr. 2.000 og fer miðasala fram við inngang.