Eyjólfur Ísólfsson heiðraður

Á afmælishátíð Félags tamningamanna s.l. laugardag hlutu þrír félagar gullmerki FT. Þetta voru þau Eyjólfur Ísólfsson, Benedikt Líndal og Freyja Hilmarsdóttir.

Á heimasíðu Hólaskóla segir að Eyjólfur sé einn af máttarstólpum reiðkennarabrautar Hólaskóla og störf hans í þágu framfara í reiðmennsku á íslenska hestinum hafi markað djúp spor, bæði hér innan skólans og utan. Merki þess gaf einmitt víða að sjá í afmælishátíðinni um helgina og í aðdraganda hennar.

Fleiri fréttir