Eyruglan ku vera brandugla

Við sögðum frá því í gær að eyrugla hefði heilsað upp á heimilisfólk á Hjaltastöðum í Skagafirði um helgina en svo var ekki. Fuglafræðingar og -áhugamenn hafa haft samband við Feyki og bent á að þarna hafi brandugla verið á ferðinni.

Brandugla er sjaldgæfur varpfugl á Íslandi, en samt sem áður eina uglutegundin sem verpir á Íslandi samkvæmt Wikipedia og líklega þá að staðaldri því um eyrugluna er sagt að hún hafi verpt hér. Branduglan er 33-40 sm á lengd, 300-500 g á þyngd, og með 90-110 sm vænghaf. Hún er ryðgul eða ljósgulbrún á bol og vængi, með dökkum langrákum á baki og að neðanverðu. Stélið er þverrákótt og snubbótt.

Branduglan er beðin afsökunar á þessum mistökum.

Fleiri fréttir