Eyþór Ingi sérstakur gestur á Sönglögum í Sæluviku
Nú fer að styttast í Sæluviku, lista- og menningarhátíð Skagfirðinga, og spennan magnast bæði hjá þátttakendum viðburðanna og hjá þeim sem þá sækja. Sönglög í Sæluviku er ein af þeim viðburðum sem er orðinn fastur liður í Sæluvikunni og ætlar enginn annar en júróvisjónfarinn Eyþór Ingi stíga á svið í Menningarhúsinu Miðgarði áður en hann fer á stóra sviðið í Malmö þann 18. maí.
Tónleikarnir verða haldnir í aðdraganda Sæluviku, föstudaginn 26. apríl og auk Eyþórs Inga mun að venju fjöldi skagfirskra tónlistarmanna koma fram á tónleikunum. Má þar nefna Óskar Pétursson tenór, barnakór Varmahlíðarskóla og fullt af ungu og hæfileikaríku fólki, eins og Einar Þorvaldsson, einn skipuleggjandi tónleikana, orðaði það.
Forsala miða verður auglýst þegar nær dregur.