Eyþór Jóvinsson efstur hjá Lýðræðisvaktinni í norðvesturkjördæmi
Lýðræðisvaktin hefur staðfest sex efstu í norðvesturkjördæmi fyrir komandi Alþingiskosningar. Efstur er Eyþór Jóvinsson, verslunarmaður en Lúðvík Kaaber héraðsdómslögmaður skipar annað sætið. Lýðræðisvaktin býður fram í öllum kjördæmum í kosningunum í vor.
Sex efstu eru:
1. Eyþór Jóvinsson - Vestfirskur verslunarmaður
2. Lúðvík Kaaber - Héraðsdómslögmaður
3. Sólrún Jóhannesdóttir - Kvikmyndafræðingur
4. Elínborg Halldórsdóttir - Myndlistamaður
5. Ólöf Dómhildur Jóhannsdóttir - Listamaður
6. Gísli Páll Guðjónsson - Sjómaður