Eyþór Reynisson sigraði

Mótorkross.is segir frá því að Eyþór Reynisson vann fyrstu umferðina í Íslandsmótinu í motocrossi sem fram fór á Sauðárkróki sl. laugardag. Er þetta önnur keppnin sem hann sigrar í Opnum flokki, hina vann hann í Bolaöldu árið 2009, þá 16 ára gamall. Hann sigraði í báðum mótunum en Hjálmar Jónsson og Kári Jónsson áttu góða spretti en náðu ekki að klára dæmið til enda.

Verðlaunapallurinn í opna flokknum var ekki líkur því sem hann hefur verið undanfarin ár en Bjarki Sigurðsson varð annar og Daði “Skaði” Erlingsson þriðji. Eyþór og Bjarki voru einnig að keppa í MX2 og urðu þar einnig í tveimur efstu sætunum en Kjartan Gunnarsson varð þriðji.

Guðmundur Kort sigraði í unglingaflokki, Guðbjartur Magnússon varð annar en þeir unnu sitthvort motoið. Hinrik Ingi Óskarsson varð þriðji.

Signý Stefánsdóttir í kvennaflokki en Karen Arnardóttir varð önnur og hin nýbakaða móðir, Aníta Hauksdóttir varð þriðja.

Einar Sigurðsson vann 85 flokkinn, annar varð Hlynur Örn Hrafnkelsson og Daníel Kristján Mathiesen varð þriðji.

Jóhann Smári Gunnarsson vann B-flokkinn og Michael B. David varð annar og Arnór Ísak Guðmundsson varð þriðji. Ragnar Ingi Stefánsson vann B40+ flokkinn en Haukur Þorsteinsson varð annar og Gunnar Sigurðsson þriðji.

Þó svo að veðurguðirnir hafi ekki verið mótshöldunum sérstaklega hliðhollir þá náðist að klára mótið og voru keppendur mjög sáttir með 1.umferð Íslandsmótsins Mótshaldarar vilja koma á framfæri þakklæti til allra sem aðstoðuðu og eða studdu framkvæmd mótsins. „það er gríðarlega mikið af fólki sem kemur að þessu móti og var starfsfólk ansi veðurbarið eftir daginn“

Fleiri fréttir