Fákaflug 2015
Fákaflug 2015 verður haldið á Vindheimamelum dagana 25. og 26.júlí n.k. Keppt verður í A-flokki, B-flokki, ungmennaflokki, unglingaflokki, barnaflokki, 100m, 150m, 250m, gæðingaskeiði og tölti. Sérstök forkeppni verður, þar sem tveir til þrír eru inná í einu. Mótið hefst kl. 09:00 á laugardaginn.
Keppendur skrá sig sjálfir inn á mótið í gegnum á sportfengur.com. Skráningum þarf að vera lokið fyrir kl. 22:00 mánudaginn 20.júlí, auk þess sem greiða þarf skráningargjöld fyrir sama tíma. Séu þau ekki greidd eyðast skráningar sjálfkrafa úr kerfinu. Skráningargjald er kr. 4000 á hverja skráningu í A-flokk,B-flokk og ungmennaflokk en í barnaflokk og unglingaflokk kr. 2000. Á hverja skráningu í skeiðgreinum er gjaldið kr.1500.
Dagskrá verður nánar auglýst síðar á 123.is/stigandafelagar og öðrum hestamiðlum, segir í tilkynningu frá mótanefnd.