Fallegt í Fjólubláa Horninu!!

Þó svo að Skagafjörður sé kannski ekki byggðarlaganna stærstur þá hefur Fröken Fabjúlöss rekið sig á það að litla sveitarfélagið okkar er uppfullt af frumkvöðlum, tískuspekúlöntum, athafnafólki og annars konar algjölega fabjúlöss fólki!

Ein sem gæti sómað sér vel í upptalningunni að ofan er tískupæjan Sigga (Sigríður Garðarsdóttir), sem gerði sér lítið fyrir og setti á laggirnar vefsíðu sem fær tískutaugar Frk Fab til að skjálfa! Purple Corner heitir síðan og inni á henni má finna allt það skart og aukahluti sem allt kvenfólk hefur ekki hugmynd um að þær vanti fyrr en dýrðin er augum barin.

Sigga hefur einsett sér að halda verði innan viðráðanlegs ramma, og finnst okkur hér í heimsveldi Fab það sko alls ekki verra! Úrvalið er mjög fjölbreytt og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi án þess að það hafi nokkurn tímann teljanleg áhrif á þyngd buddunnar!!

Við hérna á skrifstofu Fröken Fabjúlöss erum stoltar af þessu framtaki Siggu fylgihlutagyðju, og munum trúlega verða skráðar fastagestir á purplecorner.is von bráðar!

Fleiri fréttir