Fámennt á móti í gæðingafimi

Frá móti í gæðingafimi hjá KS-Deildinni í hestaíþróttum. Mynd/KS-Deildin á FB.
Frá móti í gæðingafimi hjá KS-Deildinni í hestaíþróttum. Mynd/KS-Deildin á FB.

Eins og sagt var frá á feyki.is í morgun sigraði Artemisia gæðingafimi KS-Deildarinnar sem fór fram í gærkvöldi. Samkvæmt fréttatilkynningu var þetta í annað sinn sem boðið var upp á þessa keppnisgrein. „Það verður að segjast eins og er að áhugi virtist ekki vera mikill á greininni hjá áhorfendum sem voru fáir í gærkvöldi. Áhugi knapa virtist einnig mismikill,“ segir í fréttatilkynningu frá Meistaradeild Norðurlands. 

„Eins og á öðrum keppniskvöldum voru þarna stig í boði og þeir sem röðuðu sér í efstu sætin voru öll með vel útfærðar sýningar þar sem frábær reiðmennska og gæði hrossa fóru saman.

Þetta var mjög gott kvöld fyrir lið Draupnis/Þúfur þar sem Artemisia og Mette röðuðu sér í tvö efstu sætin og náðu þar með forystu í liðakeppni deildarinnar sem er orðin æsispennandi. Mette saxaði einnig á forskot Þórarins í einstaklingskeppninni þar sem Bjarni og Gústaf fylgja fast á eftir,“ segir í tilkynningu. 

Þá segir að ljóst sé að á lokakvöldi keppninnar, sem fer fram næstkomandi miðvikudagskvöld 6. apríl, verður hart barist bæði í liða- og einstaklingskeppni deildarinnar.

Hérna má sjá stöðuna í deildinni fyrir lokakvöldið.

1.Þórarinn Eymundsson Hrímnir - 81

2.Mette Mannseth Draupnir/Þúfur - 77

3.Bjarni Jónasson Hofstorfan/66°norður - 61

4.Gústaf Ásgeir Hinriksson Hofstorfan/66°norður - 58,5

5.Ísólfur Líndal Íbess/Hleðsla - 55,5

6.Gísli Gíslason Draupnir/Þúfur - 48,5

7.Artemisia Bertus Draupnir/Þúfur - 48

8.Líney María Hjálmarsdóttir Hrímnir - 46

9.Flosi Ólafsson Mustad - 39,5

10.Fanney Dögg Indriðadóttir MountainHorse - 37,5

11.Hans Hilmarsson MountainHorse - 35

12.Helga Una Björnsdóttir Mustad - 35

13.Guðmundur Karl Tryggvason Lífland - 30

14.Hallfríður S. Óladóttir MountainHorse - 30

15.Elvar E. Einarsson Hofstorfan/66°norður - 27

16.Hlynur Guðmundsson Mustad - 26

17.Anna Kristín Friðriksdóttir Íbess/Hleðsla -24,5

18.Valdimar Bergastað Hrímnir -24

19.Þór Jónsteinsson - Lífland 23

20.Barbara Wenzl Draupnir/Þúfur - 22,5

21.Lilja Pálmadóttir Hofstorfan/66°norður - 20,5

22.Magnús B Magnússon Íbess/Hleðsla - 19,5

23.Jóhann B. Magnússon Íbess/Hleðsla - 15,5

24.Birna Tryggvadóttir Lífland - 15

25.Elvar Logi Friðriksson MountainHorse - 14,5

26.Sina Scholz Mustad - 14

27.Bjarney j Unnsteinsdóttir Mustad - 9,5

28.Agnar Þór Magnússon Lífland - 9

Liðakeppni

Draupnir/Þúfur - 196

Hrímnir - 186

Hofstorfan/66°norður - 167

MountainHorse - 117

Íbess-hleðsla - 115

Mustad - 89

Lífland - 77

Fleiri fréttir