Fáránlega fabjúlöss förðunarfræðingur!
Fröken Fabjúlöss er þeirrar skoðunar að góða álfkonan sáldri ákveðnu magni af hæfileikadufti yfir hvern þann einstakling sem kemur í heiminn, svo er það undir einstaklingnum sjálfum komið hvort hæfileikinn sé ræktaður. En stundum hefur Frökenin það á tilfinningunni að aumingja álfkonan eigi það til að hrasa aðeins við þessa athöfn sína og hæfileikaduftið dúndrist svoleiðis í kílóavís yfir einstaklinginn sem hún er að afgreiða!
Þannig er það í tilfelli Söndru Holmbom, sænskrar blómarósar sem lætur alla aðra förðunarfræðinga líta út eins og 2ja ára gömul börn með klessuliti! Listaverkin sem verða til á augnlokum Söndru eru stórkostleg, förðunin algjörlega óaðfinnanleg og pósurnar hennar á myndunum gefa það til kynna að persónuleikinn sé jafn skrautlegur og skemmtilegur og meiköpp listaverkin hennar!
Fröken Fabjúlöss er búinn að vera einlægur aðdáandi Söndru síðan hún uppgötvaði stelpuskottið fyrir nokkrum mánuðum, kíkir daglega inn á bloggið hennar í þeirri von að ný færsla hafi litið dagsins ljós, og oftar en ekki er það tilfellið!
Þið ykkar sem viljið smella Söndru hinni hæfileikaríku inn í daglega internetrúntinn, þá er síðuna hennar að finna hérna: http://psychosandra.blogg.se/
En myndir segja meira en þúsund orð, svo að Frökenin bendir á galleríið hér að neðan. Allar myndir eru fengnar á síðunni hennar Söndru og eru hennar eign!