"Farfuglarnir" komnir
Á Húnaþingsblogginu segir að „Þá fer þetta allt að byrja aftur“ og er þá verið að vísa til þeirra umferðaóhappa sem erlendir ferðamenn rata stundum í á slæmum vegum landsins. Tilefni þessarar færslu er að á Vatnsnesinu við bæinn Tjörn var bíll á hvolfi þegar tíðindamaður bloggsins var á ferðinni þar.
Ekki er vitað um slys á fólki í þessari veltu en leiða má að því líkum að fólk hafi ekki slasast því í flestum tilfellum er lögreglan kvödd á staðinn ef slys verður á fólki.