Farskólinn með námskeið á Hvammstanga
Farskólinn miðstöð símenntunar á Norðurlandi vestra stendur fyrir ljósmyndanámskeiði fyrir byrjendur á stærri vélar og verður það haldið á Hvammstanga laugardagana 5. mars og 12. mars frá klukkan 10:00. Námskeiðið fer fram í Fjarnámsstofunni að Höfðabraut 6.
Félagsmenn í Kili ættu að athuga að Kjölur stéttarfélag greiðir þetta námskeið fyrir sína félagsmenn að fullu. Fólk ætti að kynna sér rétt sinn til endurgreiðslu því almennt styrkja stéttarfélög tómstundanámskeið um allt að 50%.
Einnig er á döfinni að halda námskeið í útskurði og er fólk beðið að hafa samband við Farskólann til að fá frekari upplýsingar og til að skrá sig. Upplýsingar og skráningar hjá Farskólanum í síma 455 60 10 og hjá Helgu Hinriksdóttur í síma: 864 60 14.