Fatamarkaður RKÍ í Hlöðunni Hvammstanga
Fatamarkaður á vegum Hvammstangadeildar RKÍ verður í Hlöðunni kaffihúsi um næstu helgi.
Á vefsíðu Norðanáttar segir að þar sé um að ræða fatnað á alla fjölskylduna í ýmsum stærðum. Þú kaupir poka á 1000 kr. og setur eins mikinn fatnað ofan í hann og hægt er. Allur ágóði rennur óskiptur til deildarinnar.
Markaðurinn verður opinn kl. 16-19 á föstudag og 13-17 á laugardag.