Fegurð frá Christian Louboutin!!

Disney er að gefa út diamond edition af Cinderella (Öskubuska) á blue ray, og í tilefni af því langaði þeim að láta hanna Öskubusku skó, og vissu nákvæmlega hvert þeir áttu að snúa sér, enda bara einn í huga Fröken Fabjúlöss sem gæti valdið verkinu; Christian Louboutin!!!

Meistarinn ákvað að fara þá leiðina að nota blúndu og Swarovski kristalla til að túlka hlutverkið og útkoman eru gjörsamlega bjútífúl prinsessuskór sem draga fram tár í augum okkar hérna í glamúrhorni veraldarinnar!!! Þessi fegurð verður seint toppuð, vel gert meistari Louboutin!!

Fleiri fréttir